Fara í efni
Heim

Listahátíð í Reykjavík

júní 6.-21.

Listahátíð í Reykjavík er þverfagleg listahátíð með áherslu á nýsköpun. Hún fer fram í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum um alla borg og teygir sig jafnframt út fyrir borgarmörkin. Listahátíð í Reykjavík hefur verið leiðandi afl í íslensku menningarlífi frá stofnun árið 1970. 

Mikil listræn fjölbreytni er einkenni Listahátíðar í Reykjavík. Hún vinnur með og leiðir saman opinberar stofnanir og sjálfstæða hópa listamanna á öllum sviðum menningarlífsins. Hún hefur beint frumkvæði að fjölda verkefna, í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum, er alþjóðleg listahátíð sem starfar á breiðum vettvangi. Listahátíð hefur starfað með eða flutt verk eftir mikinn fjölda listamanna.

Í ár hefur engum viðburði hátíðarinnar verið aflýst. Þeir fá allir nýjar tímasetningar - sumir strax á næstu vikum á meðan aðrir bíða næsta veturs og vors.

Frekari upplýsingar