Náttúruperlur Norðurlands
Hótelið opnar aftur 28. maí 2021.
Löng hefð er fyrir því að taka vel á móti ferðamönnum á Mývatnssvæðinu og Icelandair hótel hlakka til að viðhalda þeirri hefð. Staðsetning Icelandair hótel Mývatns er frábærog tilvalin dvalarstaður til að skoða Mývatnssveit og nágrenni. Umhverfi hótelsins er afslappað og gott að slaka á og gera vel við sig í mat og drykk, hvort sem þú kýst að endurhlaða batteríin með samferðamönnum eða hvíla þig í þægilegum herbergjum.
Mývatn er einn af þekktustu ferðamannastöðum á Íslandi og stórkostlegur staður. Óviðjafnanleg náttúran hefur heillað jafnt ferðamenn sem og náttúrufræðinga og vísindamenn. Á Mývatnssvæðinu og nágrenni eru margar náttúruperlur sem bjóða upp á einstaka upplifun. Staðir eins og Dimmuborgir, Skútustaðir, Hverfjall og Krafla hafa einstakt aðdráttarafl og hafa heillað bæði innlenda og erlenda ferðamenn í gegnum tíðina.
- Opnaði í júlí 2018
- 59 hótelherbergi
- Herbergi með hjólastólaaðgengi
- Frábær staðsetning
- Bókaðu á heimasíðu okkar og fáðu 2500 kr. inneign á veitingastað hótelsins
- Veitingastaður og bar
- Frítt internet
- Stórbrotin náttúra
- 600 Vildarpunktar fást fyrir hverja gistinótt