Vor í Reykjavík
Skelltu þér í borgarferð til Reykjavíkur í vor
Icelandair hótel í Reykjavík og Alda Hotel Reykjavík bjóða frábær verð á hótelgistingu fyrir tvo ásamt morgunverði til og með 31. maí 2022.
Skelltu þér í borgarferð og njóttu þess að gista á fallegu hóteli eins og góðum borgarferðum sæmir.
Gisting fyrir tvo ásamt morgunverði í eina nótt á Icelandair hótel Reykjavík Natura
Frá 19.900 kr.
Gisting fyrir tvo ásamt morgunverði í eina nótt á Icelandair hótel Reykjavík Marina eða Alda Hotel Reykjavík
Frá 22.900 kr.
Á Icelandair hótel Reykjavík Natura vaknarðu með náttúrufegurðina allt um kring og fuglasöngurinn í morgungöngunni bæði róar og gleður.
Röltið í miðbæinn er stutt og skemmtilegt og eftir glaðan dag í bænum er upplifunin í spainu óviðjafnanleg.
Á hótelinu er list og menning í hávegum höfð og þú nýtur þess að skoða þig um.
Við tökum vel á móti þér á Alda Hotel Reykjavík og leggjum mikið uppúr þægilegu andrúmslofti og einstakri þjónustu. Heitur pottur og góð líkamsræktaraðstaða með sauna klefa er meðal þess sem í boði er. Njóttu góðra veitinga á Brass veitingastaðnum sem staðsettur er á hótelinu eða hvers vegna ekki að skella sér í klippingu á Barber rakarstofunni?
Icelandair hótel Reykjavík Marina er litríkt hótel við Reykjavíkurhöfn með einstakan karakter þar sem gaman er að vera. Frumleg íslensk nútímahönnun í bland við gamla muni úr slippnum einkenna hótelið og herbergi þitt, sem hefur þægindin í fyrirrúmi, en er einnig skreytt á einstakan, heimilislegan hátt