Rólegheit á Reykjavík Natura
Taktu því rólega á Reykjavík Natura
Tilvalið fyrir þá sem langar í smá frí frá amstri hversdagsins.
- Morgunverðarhlaðborð
- Þriggja rétta kvöldverður eða bröns* á Satt Restaurant (Kvöldverður samanstendur af súpu eða salati í forrétt, val um kjöt- fisk- eða veganrétt sem aðalrétt og eftirrétt að hætti hússins)
- Aðgangur í Natura Spa
- Drykkur á Satt Bar
- Framlengd herbergjaskil til kl. 14 á brottfarardegi
Verð: frá kr. 29.700 (14.850 kr. á mann) fyrir tvo í tveggja manna herbergi í eina nótt
Skoðaðu sambærileg tilboð á fleiri hótelum í kringum landið:
Notaleg og nærandi dvöld á Icelandair hótel Héraði
Notaleg og nærandi Golf upplifun á Icelandair hótel Hamri
Notaleg og nærandi dvöl á Icelandair hótel Akureyri
Öllum bókunum á heimasíðu okkar fylgja góðir kaupaukar:
- Börn yngri en 12 ára fá frían morgunverð
- Möguleikar á uppfærslu í betri herbergjatýpu
- Sveigjanlegri útritunartími (check-out time)
- 600 Vildarpunktar Icelandair
Ef bóka á fyrir fjölskylduna (fleiri en tvo).
- Ef bóka á börn með í dekurpakkann þarf að bæta þeim inn í fjölda gesta og tilgreina aldur.
- Bókunarvélin okkar ráðleggur alltaf um stærri herbergjatýpu (fjölskylduherbergi). Við það eykst verðið en þar geta allt að tvö börn gist ásamt tveimur fullorðnum.
- Séu öll fjölskylduherbergi frátekin bjóðum við einnig valmöguleika að setja uppábúin aukarúm inn á herbergi fyrir barn að hámarki 12 ára. Hvert aukarúm fyrir barn kostar 4000 kr. og er morgunverður innifalinn ásamt gistingunni. Til að óska eftir aukarúmi, vinsamlegast hringið í okkur í síma 444-4570 til að fá aðstoð við það.
- Innifalið fyrir börnin er semsagt gisting ásamt morgunverði.
- Við vekjum sérstaka athygli að því að 16 ára aldurstakmark er í heilsulind Natura Spa og því ekki hægt að bjóða fjölskyldumeðlimum undir 16 ára aldri að njóta heilsulindarinnar. Fyrir hvern auka fjölskyldumeðlim 16 ára og eldri þarf að greiða 3000 kr. í afgreiðslu Natura Spa, eða 2000 kr. í gestamóttöku hótelsins, á mann.
- Kvöldverður er ekki innifalinn fyrir börnin. Á Satt Restaurant gildir sama reglan fyrir brunch hlaðborð og kvöldverðarhlaðborð: 6-12 ára greiða 50% af fullu verði og 0-5 ára borða frítt með fullorðnum.
Fyrir allar frekari upplýsingar, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á natura@icehotels.is eða hringið í síma 444-4500.
Athugið:
Verð fyrir tvo aukanótt: frá kr. 16.000 nóttin ásamt morgunverði
*Athugið að brönsinn er eingöngu í boði um helgar, á laugardögum og sunnudögum
Kvöldverðarhlaðborðið eða bröns, aðgangur að Natura Spa og drykkur miðast við eitt skipti - gildir ekki fyrir aukanóttina
Verð og tilboð miðast við tvo saman í tveggja manna herbergi
Tilboðið gildir til 31. maí 2021
Bókun tryggð með kreditkorti - Greitt við dvöl